Ef þú treystir ekki barninu þínu til að fara sjálft í skóla eða tómstundir vegna þess að það þarf að komast yfir fjölfarna götu. Það er vegna bílamenningar.
Ef þú hefur keyrt 500-1000 m, því það er auðveldara en að ganga. Það er vegna bílamenningar.
Ef þú hefur meiri áhyggjur af því að nóg sé af plássi til að geyma kyrrstæða en að nægt pláss sé fyrir börn til að fara um og leika sér. Það er vegna bílamenningar.
Ef þú býrð í þéttbýli en þarft að sækja matvöruverslun og flesta þjónustu á bíl. Það er vegna bílamenningar.
Ef þér er tamara að segja að einhver hafi „orðið fyrir bíl“ en að ekið hafi verið á viðkomandi. Það er vegna bílamenningar.
Ef reiðhjól og hlaupahjól eru alfarið bönnuð á vegum. Það er vegna bílamenningar.
Ef það er frelsi í þínum huga að nota bíl. Það er vegna bílamenningar.
Ef fleiri deyja árlega vegna umferðar heldur en í skilgreindum „heimsfaraldri“ en þú heldur sérð meinbugi á því að minnka áherslu á umferð bifreiða í skipulagi og innviðauppbyggingu. Það er vegna bílamenningar.
No comments:
Post a Comment