Sunday, August 1, 2021

Stríðið gegn einkabílnum

Bílamenningin, þ.e. ofuráhersla á að bílar komist hratt yfir hvar sem er og skuli vera í forgangi fram yfir aðra samgöngumáta, hefur ýmsa fylgifiska.

Ef þú treystir ekki barninu þínu til að fara sjálft í skóla eða tómstundir vegna bílaumferðar á leiðinni. Það er vegna bílamenningar.

Ef þú hefur keyrt 500-1000 m innanbæjar því það er auðveldara en að ganga á áfangastað. Það er vegna bílamenningar.

Ef þú hefur meiri áhyggjur af því að nóg sé af plássi til að geyma kyrrstæðar bifreiðar en að nægt pláss sé fyrir börn til að fara um og leika sér. Það er vegna bílamenningar.

Ef þú býrð í þéttbýli en þarft samt að sækja matvöruverslun og flesta aðra verslun þjónustu á bíl. Það er vegna bílamenningar.

Ef þér er tamara að segja að einhver hafi „orðið fyrir bíl“ en að ekið hafi verið á viðkomandi. Það er vegna bílamenningar.

Ef þig dreymir um að flytja erlendis og lifa rólegu borgarlífi í Evrópu og losna við tímastuldinn sem fylgir bæði því að vera einkabílstjóri fyrir börnin þín og öðru skutli. Það er vegna bílamenningar.

Ef það er frelsi í þínum huga að nota bíl en þú hugsar aldrei ekki út í að þú ert neydd/ur til að vera á bíl til að geta tekið þátt í samfélaginu. Það er vegna bílamenningar.

Ef fleiri deyja árlega vegna umferðar heldur en í skilgreindum „heimsfaraldri“ en þú sérð samt meinbugi á því að minnka áherslu á umferð bifreiða í skipulagi og innviðauppbyggingu. Það er vegna bílamenningar.